Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Fréttir

Fjarnám í hjúkrunarfræði haustið 2012?
Undanfarin 12 ár hefur Háskólinn á Akureyri verið með fjarnámshóp í hjúkrunarfræði staðsettan á Ísafirði. Nú í vor mun þriðji útskrifarhópurinn útskrifast en hann telur 6 nema. Þar með hafa 20 hjúkrunarfræðingar útskrifast frá Háskólanum á Akureyri en staðsettir á Ísafirði. Vilji er til að áframhald verði á fjarkennslu í hjúkrunarfræði til Ísafjar......
Meira

Fjarnám

Í Háskólasetri Vestfjarða er opin aðstaða fyrir alla nemendur sem stunda nám eða rannsóknir á háskólastigi á Vestfjörðum. Sex háskólar á Íslandi bjóða upp á fjarnám af einhverju tagi, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Hólum, Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri og Háskólinn á Bifröst. Fjarnámið fer fram á mismunandi hátt, ýmist í gegnum fjarfundarbúnað eða á netinu.

Háskólasetrið býður fjarnemum upp á lestraraðstöðu, prentaðstöðu og þeir sem þurfa að sækja tíma í gegnum myndfundabúnað sækja þá í Háskólasetrinu.

Nemendur geta fengið lyklakort (gegn vægu tryggingagjaldi) þannig að þeir geti nýtt sér aðstöðuna hvenær sem hentar.  Þeir fjarnemar sem óska eftir að nýta sér aðstöðuna í Háskólasetrinu byrja á því að setja sig í samband við kennslustjóra eða móttökuritara.

Háskólasamfélagið

„Ég mæli með CMM meistaranáminu fyrir erlenda námsmenn en þetta er vaxandi nám á mikilvægu sviði. Um leið kynnist maður menningu og fólki í nýju landi."

Traian Leu, USA CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón