Menu

University centre

Log in

Webmail

Íslenska á einni viku

Námskeið í íslensku haldið á Ísafirði dagana 3-8. janúar 2012 og 26.-31. ágúst 2012.

 

Frekari upplýsingar eru á ensku.



 

Námskeiðslýsing
 

Íslenskunámskeið sem er ætlað erlendum stúdentum og borgurum sem vilja kynnast íslensku máli með hraði. Nemendur ljúka samtals 37 fjölbreyttum og áhugaverðum kennslustundum.

Grundvallaratriði í orðaforða verða kennd í gegnum fyrirlestra og æfingar. með mjög lítilli áherslu á málfræði. Lestrar- og skriftarkunnátta verður kennd í gegnum hópavinnu og lausnarleitarnám. Nemendur taka þátt í samtalsæfingum í gegnum tungumálaleiki og lausnarleitarnám við raunverulegar aðstæður. Framburðaræfingar verða fjölbreytilegar og óvenjulegar.

Nemendur sjá tvær íslenskar kvikmyndir sem kennari fylgir úr hlaði með stuttu inngangserindi.  Myndirnar verða á íslensku en með enskum texta. Að sýningu lokinni gefst nemendum kostur á að ræða myndina við kennarann.

Afþreyingardagskrá
 

Þótt tungumála- og menningarnámið sé í aðalhlutverki verður einnig í boði afþreyingardagskrá.

Á Ísafirði eru í boði margskonar afþreying, s.s. skipulagðar ferðir af ýmsu tagi. Þessar ferðir eru ekki innifaldar í námskeiðsgjaldinu.

Á Ísafirði finna nemendur fjölda áhugaverðra staða, þar eru kaffihús, veitingastaðir og skemmtistaðir. Þar er líka sundlaug og margt fleira auk þess sem náttúran í kring býður upp á ýmsa möguleika. Þátttaka í daglegu lífi í litlu bæjarfélagi á landsbyggðinni eins og Ísafirði auðveldar nemendum að fá tilfinningu fyrir íslensku samfélagi.

Hér er um að ræða áhugavert sumarnámskeið í fallegri náttúru Vestfjarða. Háskólasetur Vestfjarða hefur reynslu af því að halda íslenskunámskeið fyrir erlenda stúdenta og borgara og býður nemendur hjartanlega velkomna.

Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband, 
islenska@uwestfjords.is. 

Our community

"The students here are happy, very open and welcoming. They are an international and eclectic student body - with lots of variety. They invited me to join them for meals and trips. I appreciated their openness as colleagues."
John Nyboer CMM Instructor, Research Associate Simon Fraser University Vancouver, Canada

Announcements

The Biosphere of Icelandic Springs
On March 29 at 12.15 - 12.45 Dr. Bjarni K. Kristjánsson will give a talk on the biosphere of Icelandic springs. His talk will be in Icelandic and shown via video conference at the ......
More
Vefumsjón