Markaðsfræði I
Námskeiðið er einnig kennt í fjarkennslu til Hólmavíkur, Patreksfjarðar og Tálknafjarðar.
Lýsing
Farið er í gegnum grunnþætti markaðsfræðinnar. Námskeiðið byggir á fjórum meginþáttum í bók Kotlers:
- Að skilja grunnþætti markaðsstarfs.
- Að greina markaðstæki.
- Að setja saman tilboð til viðskiptavina.
Fjallað verður um stýringu og framkvæmd markaðsþátta.
Markmið
Nemendur ættu að námi loknu að:
- Skilja grundvallaratriði í markaðsfræðum
- Skilja mikilvægi markaðsstarfs í daglegri starfsemi fyrirtækja
- Hafa næga innsýn til að móta og framfylgja markaðsáætlun.
Fyrir hverja er þetta námskeið?
Þetta námskeið er tilvalið fyrir alla þá sem hafa löngun til að byrja í háskólanámi en vilja ekki skrá sig í fullt nám.
Ásamt því að vera gífurlega hagnýtt nám þá veitir það 3 háskólaeiningar til BS prófs.
Kennari
Jón Páll Hreinsson,
Forstöðumaður markaðsstofu Vestfjarða.
MSc í alþjóðaviðskiptum.
Skipulag
Kennsla fer fram á miðvikudögum frá 16:00 til 19:00.
Námskeiðið hefst 7. febrúar 2007 og er samtals 36 klst.
Þátttakendur þreyta lokapróf í enda náms.
Kennslubók
Marketing Management (12. útgáfa) e. Kotler og Keller.
Þátttakendur þurfa sjálfir að kaupa sér kennslubók en hún fæst í bóksölu stúdenta.
Þátttökuskilyrði
Þar sem þetta er námskeið á háskólastigi er krafist stúdentsprófs.
Frekari upplýsingar og skráning
Martha Lilja Marthensdóttir
Sími 450 30 41
marthalilja hjá hsvest.is
Skráning
Verð: kr. 60.000,-
Ath! Lágmarksfjöldi þátttakenda miðast við 12 manns.