Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Menntatengd ferðaþjónusta

Við Háskóla Íslands er í boði námsleið á meistarastigi sem nefnist hagnýt menningarmiðlun. Nemendur í þessu námi, nánar tiltekið í námskeiði sem nefnist menntatengd ferðaþjónusta, munu dvelja á Ísafirði dagana 24. -26. febrúar. Námskeiðið er eingöngu kennt sem vettvangsnámskeið á Ísafirði og á Ströndum í samstarfi við Strandagaldur og Þjóðtrúarstofu. Námskeiðið er haldið á vegum Háskóla Íslands og Háskólaseturs Vestfjarða.
Menntatengd ferðaþjónusta er í sókn víða um heim og mun fara vaxandi á Íslandi á næstu árum. Á Vestfjörðum er unnið að ýmsum verkefnum á þessu sviði þar sem vísindi, menning og saga eru í forgrunni. Þannig er menntatengd ferðaþjónusta á Vestfjörðum nátengd menningartengdri ferðaþjónustu. Markviss miðlun er mikilvæg fyrir velgengni þessarar greinar og í vettvangsferð til Vestfjarða munu nemendur kynnast ýmsum sprotum menntatengdrar ferðaþjónustu og þeim vaxtarmöguleikum og takmörkunum sem í henni búa. Nemendur munu fjalla um miðlun þeirra verkefna sem eru í gangi en jafnframt koma með tillögur að nýjum verkefnum í menntatengdri ferðaþjónustu og setja fram hugmyndir um miðlun þeirra. Umsjónarkennari námskeiðsins er Eggert Þór Bernharðsson.
Hagnýt menningarmiðlun er 45 eininga M.A.-nám sem vistað er innan sagnfræði- og fornleifafræðiskorar Hugvísindadeildar. Í náminu er leitað eftir þverfaglegu samstarfi með það að markmiði að tengja saman íslenska sögu og menningu og opna nemendum nýjar leiðir í miðlun rannsókna sinna og þekkingar. Áhersla er lögð á að nemendur ljúki miðlunarverkefnum, tileinki sér fjölþætta framsetningu efnis og öðlist reynslu sem geri þeim fært að vinna sjálfstætt á sviði miðlunar.
Almenningi er boðið að taka þátt í hluta námskeiðsins, þ.e. fyrirlestrum og vettvangsferðum dagana 24. og 25. febrúar. Fyrirlesarar eru á meðal fremstu sérfræðinga á þessu sviði, Eggert Þór Bernharðsson sagnfræðingur, Þorleifur Þór Jónsson hagfræðingur hjá Samtökum ferðaþjónustunnar og Guðrún Þóra Gunnarsdóttir frá Háskólanum á Hólum. Einnig eru fyrirlesarar á námskeiðinu meðal helstu sérfræðinga og frömuða Vestfirðinga á þessu sviði en þau eru Jón Sigurpálsson, Jón Páll Hreinsson, Þorleifur Eiríksson, Dorothee Lubecki, Þórir Örn Guðmundsson, Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir, Jón Jónsson, Magnús Hrafnsson og Sigurður Atlason.

Meira úr "Eldri námskeið"

Háskólasamfélagið

„Ég mæli með CMM meistaranáminu fyrir erlenda námsmenn en þetta er vaxandi nám á mikilvægu sviði. Um leið kynnist maður menningu og fólki í nýju landi."

Traian Leu, USA CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón