Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Spánverjavígin 1615 - Málţing og sýning í Dalbć, Snćfjallaströndr

Snjáfjallasetur mun þann 24. júní halda málþing og efna til sýningar um Spánverjavígin sem áttu sér stað árið 1615 í samvinnu við verkefnið Vestfirði á miðöldum, Strandagaldur, Náttúrustofu Vestfjarða og fleiri aðila. Sýningin og málþingið verða í Dalbæ á Snæfjallaströnd 24. júní 2006, kl. 15-18, í næsta nágrenni við þá staði þar sem vígin áttu sér stað. Er ókeypis á málþingið og sýninguna þennan dag. Á sunnudeginum 25. júní verður farið í vettvangsskoðun með leiðsögn í Æðey, Sandeyri og Ögur. Í boði verða bátsferðir frá Ísafirði fram og til baka. Einnig er hægt að fá svefnpokapláss í Dalbæ og bátsferð til Ísafjarðar á sunnudeginum.
Á málþinginu í Dalbæ og á sýningunni verða samskiptum Íslendinga og Spánverja/Baska á 17. öld gerð skil; fornleifarannsóknum sem tengjast samskiptum við Spánverja/Baska, sögulegum forsendum Spánverjavíganna og eftirmálum þeirra, hvalveiðum Baska og viðskiptatungumálinu lingua franca, útbreiðslu þess og þýðingu fyrir samfélag þess tíma.
Fyrirlesarar verða Selma Huxley, sem hefur áður komið hingað til lands og hefur í áratugi rannsakað sjóferðir Spánverja til Íslands og Nýfundnalands. Hún hefur sérstaklega rannsakað Spánverjavígin á Vestfjörðum og sögu skipstjóra þeirra, Martins de Villafranca; Michael Barkham, doktor við Harvard og hefur sérstaklega rannsakað hvalveiðar Spánverja; Henrike Knörr, formaður Basknesku Akademíunnar, sem hefur rannsakað viðskiptatungumálið lingua franca sem þróaðist í samskiptum Spánverja og Íslendinga á 17. öld; Torfi Tulinius, formaður verkefnisins Vestfirðir á miðöldum, mun fjalla um það hvort víg Spánverjanna hafi verið fjöldamorð; Magnús Rafnsson, sagnfræðingur í Strandagaldri mun kynna fornleifarannsóknir í Steingrímsfirði sem hafa leitt í ljós leifar spænskrar hvalveiðistöðvar. Hann mun einnig fjalla um Jón lærða, sem skrifaði rit um Spánverjavígin skömmu eftir atburðina; Már Jónsson, sagnfræðingur, mun fjalla um Ara í Ögri sem stjórnaði aðförinni að Spánverjum; Trausti Einarsson, sagnfræðingur, mun fjalla um hvalveiðar Spánverja við Ísland og Sigurður Sigursveinsson mun fjalla um Spánverjavígin og Martin de Villafranca.
Á Jónsmessukvöldvöku kl. 20 um kvöldið flytur Steindór Andersen kveðskap eftir Jón lærða og Elfar Logi Hannesson flytur frumsaminn leikþátt sem byggir á upplifun Jóns lærða á Spánverjavígunum.

Meira úr "Eldri námskeiđ"

Háskólasamfélagiđ

„Á Íslandi getur náttúran verið óblíð en menningin og samfélagið eru sterk. Dvölin á Íslandi hefur gefið mér kollega sem ég mun njóta góðs af til lífstíðar, kveikt í mér eldmóð um málefni strandsvæðastjórnunar og skilið eftir sig yfirvaraskegg."

Henry Fletcher, Englandi CMM nemi 2008 - 2009
Vefumsjón