Valmynd

Um Háskólasetur

Námsnet

Vefpóstur

Guđbrandur Benediktsson, Minjasafn Reykjavíkur og Háskóli Íslands

Guðbrandur sem fæddur er árið 1973 hefur mastersmenntun í safnafræði og sagnfræði. Í lokaritgerð sinni í safnafræði skrifaði Guðbrandur um tengsl safna og ferðaþjónustu. Hann starfar nú sem deildarstjóri miðlunar á Minjasafni Reykjavíkur auk þess sem hann er stundakennari í ferðamálafræði, safnafræði, sagnfræði og fornleifafræði við Háskóla Íslands. Guðbrandur hefur víðtæka reynslu af undirbúningi sögusýninga m.a. hjá Þjóðminjasafni Reykjavíkur og ljósmyndasafni Reykjavíkur. Guðbrandur mun segja nemendum frá sýningu sem nýlega var opnuð í Aðalstræti í Reykjavík, tilurð hennar og hönnun auk þess að vinna með nemendum í work-shop vinnu.

Háskólasamfélagiđ

„Ég mæli með CMM meistaranáminu fyrir erlenda námsmenn en þetta er vaxandi nám á mikilvægu sviði. Um leið kynnist maður menningu og fólki í nýju landi."

Traian Leu, USA CMM nemi 2008-2009
Vefumsjón