Meistaranemar rannsaka hnúfubaka í Ísafjarðardjúpi

Tveir meistaranemar Háskólaseturs Vestfjarða fengu styrk til að rannsaka hnúfubaka í Ísafjarðardjúpi í sumar og haust, þau Benedek Regoczi and Laura Lyall. Styrkurinn er veittur af Rannís, nýsköpunarsjóði námsmanna, fyrir 2.040.000 kr. Brack Hale, fagstjóri meistaranáms í Haf- og Strandsvæðastjórnun sótti um styrkinn fyrir hönd Háskólaseturs Vestfjarða fyrir verkefnið “Rannsóknir á hvölum fyrir ábyrgar siglingaleiðir”.

Verkefnið verður unnið í samvinnu við Borea, Sjóferðir, Húsavík, Vestmannaeyjar og Whale Wise. Í verkefninu kemur fram að Ísafjarðardjúp er mikilvægt fæðusvæði fyrir hnúfubaka en litlar upplýsingar liggja fyrir um hvalina í dag. Á sama tíma er mikið um röskun af mannavöldum á svæðinu þar á meðal tíðar bátsferðir um Ísafjörð og er talið að þær muni bara aukast, sem getur þýtt meiri áhrif á hegðun og heilsu hvalanna. Í verkefninu er lagt til samstarfsnet til að kanna útbreiðslu hvalanna í Ísafjarðardjúpi til að stuðla að upplýstum og ábyrgum starfsháttum á svæðinu. Verkefnið veitir tveimur nemendum styrk eins og áður segir, sem munu vinna í samvinnu við hvalaskoðunarfyrirtæki, verndarsamtök og fræðilega samstarfsaðila til að safna gögnum og greina þau. Laura mun meta mikilvægi svæðisins fyrir hvali, á meðan Ben mun kanna dreifingu hvala á svæðinu til að bera kennsl á skörun við starfsemi af mannavöldum. Nemendurnir munu vinna saman að gerð ráðlegginga um ábyrgar siglingar í Ísafjarðardjúpi.

Benedek segir að gagnaöflun hefjist líklegast í byrjun júní, eða lok maí. Hann segir að hnúfubakar hafa bæði umhverfislegt og efnahagslegt hlutverk á Íslandi, bæði í tengslum við vistkerfið og í vaxandi hvalaskoðunar iðnaði. Hins vegar, þar sem starfsemi af mannavöldum hefur verið að aukast með tímanum, skapar hún á sama tíma hættu fyrir þessi sjávarspendýr, eins og aukinn möguleiki á árekstrum skipa og hvala. Þess vegna mun Benedek rannsaka staðbundna og tímabundna dreifingu hnúfubaks, sem hugsanlega er hægt að nota til að þróa stjórnunaraðferðir sem lágmarka möguleg áhrif af mannavöldum á hnúfubaka.

Til þess að afla nauðsynlegra gagna mun Benedek framkvæma kannanir um borð og á landi frá júní til október, í samvinnu við staðbundin hvalaskoðunarfyrirtæki, háskóla og Whale Wise, góðgerðarstofnun fyrir sjávarspendýrarannsóknir, í samvinnu við meistaranemann Lauru Lyall. Gögnin sem Benedek mun safna munu hugsanlega veita dýrmæta innsýn í verndun sjávar og stjórnun siglingaleiða.

Laura Lyall, sem mun rannsaka mikilvægi svæðisins fyrir hnúfubaka segir að takmarkaðar vísindarannsóknir hafa verið gerðar á því efni til þessa, en vísbendingar eru um það að fjöldi þeirra fari vaxandi í Ísafjarðardjúpi á fæðutímabili þeirra.

“Við Ben munum nota hvalaskoðunarbáta sem rannsóknartæki til að taka myndir af sporðunum á hnúfubökum. Með því að greina mynstrin á sporðunum sem eru öll einstök, munum við bera kennsl á hvern og einn hnúfubak og skrásetja þá. Ég mun einnig bera mín gögn saman við gögn fyrrum meistaranema Háskólaseturs Vestfjarða, Justin Brown sem rannsakaði hnúfubaka í Ísafjarðardjúpi árið 2018 fyrir meistaraverkefnið sitt. Ég mun einnig bera skráninguna okkar saman við gögn frá Húsavík og mun það gefa innsýn í ferðir hvala í kringum Ísland.” - segir Laura.

Við óskum Benedek og Lauru góðs gengis með verkefnin sín og hlökkum til að heyra niðurstöður þeirra.